Málefnastarf

Umsagnir, nefndir og ráð

Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu aðildarfyrirtækja þannig að framleiðni og verðmætasköpun geti aukist. Með ritun umsagna og vöktun nýrra reglna sem varða atvinnulífið gæta samtökin að því að rödd atvinnulífsins heyrist. Á hverju ári berast Samtökum atvinnulífsins fjöldi mála til umsagnar. Mál berast frá Alþingi, ráðuneytum, stofnunum og fyrirtækjum. Þegar nýjar reglur eru settar er varða rekstrarskilyrði fyrirtækja og atvinnulífið í heild standa samtökin vaktina og gæta hagsmuna atvinnulífsins. Auk þess taka SA oft upp mál að eigin frumkvæði og vekja athygli stjórnvalda eða almennings á þeim.

Samráðsgátt stjórnvalda auðveldar hagsmunaaðilum að koma sjónarmiðumsínum á framfæri á fyrri stigum máls. Gáttin eykur gagnsæi og möguleika SA á aðtaka þátt í stefnumótun og ákvarðanatöku opinberra aðila. SA skoða öll mál semkoma í gáttina og meta hvort þau hafi áhrif á atvinnulífið og skrifa þá eftiratvikum umsögn.

Einföldun regluverks

Samtök atvinnulífsins leggja sérstaka áherslu á einföldun regluverks sem gildir um atvinnulífið, en SA styðja við öll mál sem hafa það að markmiði að einfalda reglubyrði, þar með talið mál er fela í sér sameiningu ríkisstofnana. Íslenskt atvinnulíf býr við eina þyngstu reglubyrði sem þekkist meðal aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Mikilvægt er að atvinnulífið búi við skýrar og góðar leikreglur og að almenningur, hið opinbera og önnur fyrirtæki séu vel varin gagnvart ólögmætri háttsemi í atvinnurekstri.

Öflugt eftirlit með atvinnustarfsemi er einnig mikilvægt til að auka trúverðugleika atvinnulífsins, einkum fyrir útflutningsgreinar. Lagaumhverfi og eftirlit má hins vegar ekki vera of íþyngjandi. Það eykur kostnað fyrirtækja sem minnkar þannig svigrúm til launahækkana og veikir samkeppnishæfni þeirra gagnvart fyrirtækjum í öðrum löndum. Veikari samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs leiðir til þess að störf verða færri en ella og starfsöryggi minna. Fyrirtæki skila þannig minni skatttekjum sem gerir það að verkum að hið opinbera verður verr í stakk búið til að standa undir grunnþjónustu sinni við almenning. Einföldun laga- ogeftirlitsumhverfis atvinnulífsins er því hagsmunamál allra landsmanna og nauðsynlegur þáttur til að bæta kjör og tryggja næga atvinnu.

Opinbert eftirlit

Á Íslandi er aragrúi stofnana sem annast opinbert eftirlit með fólki og fyrirtækjum. Eftirlitsmenningin ætti að einkennast af trausti og gagnkvæmri virðingu fyrirtækja og stofnana. Eftirlitsstofnanir mega ekki ganga út frá því að lögbrot séu eðlilegur þáttur í starfi vinnandi fólks og rekstri fyrirtækja. Vandamálin við núverandi kerfi eru margvísleg en stöðlun á framkvæmd eftirlits gæti verið ein lausnin. Draga þarf úr matskenndum þáttum og gæta þess að niðurstöður eftirlits séu ekki litaðar af geðþóttaákvörðunum heldur fyrirfram skilgreindum matsþáttum.

Margar eftirlitsstofnanir hafa tekið upp nútímalegri eftirlitshætti, svo sem fjareftirlit og stafrænt eftirlit, en opinbert eftirlit á auðvitað að taka breytingum eins og annað samhliða framþróun á ýmsum sviðum og breyttum viðhorfum. Í því samhengi væri skynsamlegt að greina og ná utan um umfang opinbers eftirlits með kerfisbundnum hætti og endurmeta reglur sem í gildi eru. Meta þarf hvort tilteknar reglur eigi enn við og bæði þjóni og nái eðlilegum markmiðum. Að auki þarf að vera á varðbergi við innleiðingu nýrra reglna, sérstaklega alþjóðlegra, og gæta þess að þær flæki reglurammann ekki um of þannig að erfitt sé fyrir fyrirtæki að framfylgja þeim. Heildstætt mat ætti að fara fram á fyrirliggjandi umgjörð, þ.e. að gömlum reglum sé skipt út fyrir nýjar í stað þess að stöðugt sé aukið við regluverkið.

Í stjórnarsáttmálum undanfarinna ríkisstjórna hefur verið lögð áhersla á einföldun regluverks og voru stigin skref í þá veru af hálfu atvinnuvegaráðuneytis árið 2020 þegar ráðuneytið fékk OECD til að gera samkeppnismat á regluverki íslensks byggingariðnaðar og íslenskri ferðaþjónustu. Í niðurstöðu skýrslu mátti finna 438 tillögur til breytinga á íslensku regluverki til einföldunar og aukinnar samkeppnishæfni. SA fögnuðu þessari vinnu og hafa lagt til að sambærilegt mat fari fram í öðrum atvinnugreinum.

SA hafa bent á að við lagasetningu skorti verulega á mat á áhrifum hennar á atvinnulífið. Ísland er mjög langt á eftir nágrannaríkjum í þessum efnum. Hér eru metin áhrif á tekjur og gjöld ríkissjóðs, lagt er gróft mat á áhrif á sveitarfélög og nýlega var farið að leggja kynjamat á lagafrumvörp. Uppi hafa verið hugmyndir um að loftslagsmeta frumvörp en ekki hefur verið skýr vilji af hálfu stjórnvalda til að meta áhrif lagasetningar á atvinnulíf. SA munu áfram leggja áherslu á í umsögnum sínum að efnahagsleg áhrif lagasetningar verði metin.

Nefndir og ráð

Samtök atvinnulífsins tilnefna fulltrúa atvinnurekenda í ýmsar stjórnir, nefndir og ráð meðal annars á sviði efnahags- og kjaramála, atvinnumála, umhverfis- og menntamála og í stjórnir lífeyrissjóða. Það skiptir máli að sjónarmiðum atvinnulífsins sé víða komið á framfæri.

Listi yfir nefndir og ráð